Einfaldari bókanir
Hraðvirkt og þægilegt bókunarflæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.
NÝ KYNSLÓÐ REKSTRARKERFIS
Stundagátt er nýtt íslenskt rekstrarkerfi fyrir golfhermastaði og aðra staði sem selja bókanlegan tíma.
Byggt á margra ára reynslu úr raunverulegum rekstri og hannað til að einfalda bókanir, greiðslur og daglega umsýslu.
Fyrstu innleiðingar hefjast haustið 2026.
Hentar fyrir golfherma, pílur, karaoke, kennslu og aðra bókanlega afþreyingu.
KJARNINN
Stundagátt sameinar mikilvægustu verkfæri rekstrarins í einu skýru flæði.
Hraðvirkt og þægilegt bókunarflæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.
Bókaðu fleiri en einn hermi eða bás í einni bókun og einni greiðslu.
Öruggar greiðslur, skýr staða og sjálfvirkari endurgreiðslur.
Tímabundnir PIN-kóðar og aðgangur sem fylgir staðfestri bókun.
Grunnur fyrir aðildir, klippikort, inneignir og gjafabréf.
Dagatal, nýting, frávik og rekstrargögn á einum aðgengilegum stað.
BYGGT Á REYNSLU
Stundagátt verður til eftir margra ára samstarf við rekstraraðila og þróun lausna fyrir þúsundir raunverulegra bókana.
Við hönnun kerfisins er sérstaklega horft til þeirra atriða sem hafa reynst takmarkandi í eldri lausnum: hópabókana, verðbreytinga yfir daginn, sjálfvirkra endurgreiðslna, aðildarkerfa, aðgangsstýringa og daglegrar yfirsýnar.
VERÐUM Í SAMBANDI
Fyrstu innleiðingar Stundagáttar hefjast í haust. Skráðu áhuga til að fá upplýsingar um kerfið og komandi kynningar.